Leikjameistarinn er stærsti og flottasti pakkinn sem við bjóðum upp á þar sem keppt er í öllum skemmtilegustu tækjunum okkar eins og Speed of Light, Lasertag, Beerball, Fruit Ninja, körfubolta og margt fleira.
Hópnum er skipt í lið þar sem hvert lið kýs liðsstjóra sem sér um að skrá stigin niður. Liðin keppa í tækjunum og skrá niður stigafjölda fyrir hvern og einn einstakling í hverju tæki fyrir sig, allir keppendur spila í öllum leikjunum.
Í boði er að panta pizzu eða annan mat ásamt bjór/gos með Leikjameistaranum. Starfsmaður Smárabíós fylgir ykkur allan tímann í gegnum keppnina og sér til þess að allt gangi vel.